Terms of service
Þessi skilmáli gildir um sölu á vöru frá Gullkúnst til neytenda. Skilmálinn, sem staðfestur er með staðfestingu á kaupum, er grunnurinn að viðskiptunum.
1. Skilgreining
- Seljandi er Gullkúnst kennitala: 591023-0470
- Kaupandi er sá aðili sem er skráður kaupandi á reikning.
2. Skilaréttur
Hægt er að skipta vörum hjá okkur innan 30 daga frá því að varan er keypt. Allar vörur afhendast með ábyrgðarskírteini, hvort sem þær eru keyptar á vefsíðu Gullkúnst eða í verslunum okkar. Vörur eru ekki endurgreiddar, heldur einungis er um inneignanótu í verslun okkar að ræða.
Athugið samt að ákvæði laga nr. 16/2016 sé vara keypt í netverslun hefur neytandi rétt til að falla frá fjarsölusamningi og fá endurgreiðslu, hefur neytandi 14 daga til þess.
Réttur til að falla frá samningi sé vara keypt á vefverslun:
Þú hefur rétt til að falla frá þessum samningi án þess að tilgreina nokkra ástæðu innan 14 daga.
Frestur til að falla frá samningnum rennur út 14 dögum eftir þann dag sem þú eða annar einstaklingur sem þú tilgreindir, annar en flutningsaðilinn, hefur fengið vöruna í sína vörslu.
Til þess að nýta réttinn til að falla frá samningnum þarft þú að tilkynna okkur hjá Gullkúnst, Laugavegi 49 - S: 561-6660 - gullkunst@gullkunst.is, ákvörðun þína um að falla frá samningnum með ótvíræðri yfirlýsingu (t.d. með bréfi sendu í pósti eða tölvupósti).
Til að fresturinn teljist virtur nægir þér að senda tilkynningu um að þú neytir réttar þíns til að falla frá samningi áður en fresturinn rennur út.
Áhrif þess að falla frá samningi:
Ef þú fellur frá þessum samningi munum við endurgreiða þér allar greiðslur sem við höfum fengið frá þér, þ.m.t. afhendingarkostnað (að undanskildum viðbótarkostnaði vegna þess að þú valdir annan afhendingarmáta en ódýrasta staðlaða afhendingarmáta sem við bjóðum). Endurgreiðsla fer fram án ástæðulausrar tafar og alla jafna ekki síðar en 14 dögum eftir að okkur berst tilkynning um um að þú fallir frá þessum samningi. Við munum endurgreiða þér með því að nota sama greiðslumiðil og þú notaðir í upphaflegu viðskiptunum, nema þú hafir samþykkt annað sérstaklega. Þú þarft ekki að bera neinn kostnað af þessari endurgreiðslu. Við getum beðið með endurgreiðslu þar til við höfum fengið vöruna aftur eða þú hefur lagt fram sönnun fyrir endursendingu hennar, hvort sem kemur á undan.
Þú þarft að endursenda vöruna eða afhenda vöruna í verslun okkar, án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum eftir daginn sem þú tilkynnir okkur ákvörðun þína um að falla frá samningnum. Fresturinn telst virtur ef þú endursendir vöruna fyrir lok 14 daga tímabilsins.
https://island.is/reglugerdir/nr/0435-2016
Þú þarft að bera beinan kostnað af endursendingu vörunnar.
Eyðublað: https://neytendastofa.is/library/Files/Neytendarettarsvid/ey%c3%b0ubla%c3%b0_.docx
Eftirfarandi vara fellur ekki undir skilarétt :
• Vara sem hefur verið áletruð, stytt eða breytt á einhvern hátt að þörfum kaupanda.
• Sérsmíði sem er framleidd samkvæmt forskrift og ber skýr auðkenni kaupanda.
3. Pöntun
- Ef varan er ekki til á lager getum við sérsmíðað sambærilega vöru ef þess er óskað. Upplýsingar um það skulu berast í gegnum tölvupóst gullkunst@gullkunst.is
- Pöntun eru bindandi þegar hún er skráð á netþjón seljanda. Það gerist þegar kaupandi hefur staðfest pöntun.
- Kaupandi fær senda staðfestingu á kaupum þegar pöntun er skráð. Kaupanda er bent á að kynna sér gaumgæfilega pöntunarstaðfestingu þegar hún berst. Einnig ætti að ganga úr skugga um að hún sé í samræmi við fyrirhugaða pöntun.
- Seljandi er einnig bundinn til að afgreiða pöntun kaupanda svo lengi sem hún er í samræmi við vöruúrval og verðlagningu. Allar pantanir þar sem grunur um að brögð séu í tafli og/eða þar sem hugbúnaðargalli hefur áhrif eru afturkallaðar.
- Ein stærðarbreyting á hringum er innifalin í kaupverðinu, sé hún gerð innan 30 daga frá kaupdegi. Séu hringar sendir með pósti til breytingar, greiðir kaupandi sendingakostnað.
4. Upplýsingar
- Seljandi veitir upplýsingar um vörur eftir bestu vitund hverju sinni.
- Seljandi birtir allar upplýsingar með fyrirvara um bilanir, vírusa, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum.
- Það skal ítrekað að allar ljósmyndir hér á síðunni er birtar með fyrirvara um að viðkomandi vara sé enn fáanleg. Ef vara er ekki fáanleg, getur kaupandi valið sér aðra sambærilega vöru eða fengið vöruna þegar hún verður aftur fáanleg í verslun
- Vöruúrval er mismunandi milli vefverslunar og verslunnar.
- Ennfremur áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa í heild eða að hluta til pöntun kaupanda ef að varan er uppseld. Undir þeim kringumstæðum fær kaupandi tilkynningu ásamt upplýsingum um hvað gæti mögulega hentað í staðinn. Kaupandi fær þá möguleika á að samþykkja þá tillögu eða aflýsa pöntun í heild sinni.
5. Verð
- Öll uppgefin verð eru í íslenskum krónum.
- Öll verð eru upp gefin með virðisaukaskatti og öllum opinberum sköttum og gjöldum og hið sama á við um verð sem tilgreint er á reikningum sem Gullkúnst gefur út á hendur viðskiptavinum. Verði gerðar breytingar á skatthlutföllum laganna, eða aðrar lagabreytingar sem hafa í för með sér breytingar á beinum og óbeinum sköttum sem koma fram í vöruverði, áskilur Gullkúnst sér fullan rétt til fyrirvaralausra verðbreytinga, jafnvel eftir atvikum í tilviki þegar framkominna pantana.
- Um verðmerkingar og einingarverð við sölu á vörum í Gullkúnst fer samkvæmt ákvæðum reglna nr. 536/2011, um verðmerkingar og einingarverð við sölu á vörum, eftir því sem við á.
Verðbreytingar og villur
- Gullkúnst selur vörur og þjónustu á því verði sem kemur fram á verðmerkingum og í auglýsingum. Þetta gildir þó ekki ef um augljós mistök er að ræða.
- Gullkúnst áskilur sér rétt til að leiðrétta villur í auglýsingum, sbr. 9. gr. reglna nr. 366/2008, um útsölur eða aðra sölu þar sem selt er á lækkuðu verði.
- Að öðru leyti áskilur Gullkúnst sér rétt til fyrirvaralausra verðbreytinga eftir því sem ástæður þykja til.
- Gullkúnst áskilur sér rétt til að taka vörur úr sölu fyrirvaralaust.
- Gullkúnst áskilur sér rétt til að staðfesta pantanir símleiðis.
6. Greiðsla
- Við tökum á móti: VISA og Mastercard.
- Einnig bjóðum við upp á netgíró
- Pöntun er ekki staðfest fyrr en greiðsla er innt af hendi.
- Ef að sölu hefur orðið og vara ekki fáanleg, er kaupanda boðið uppá endurgreiðslu, aðra sambærilega vöru eða að bíða eftir að vara verði fáanleg.
7. Afhending og seinkun
- Ef afhendingu seinkar mun seljandi tilkynna það til kaupanda ásamt upplýsingum um hvenær pöntunin verður tilbúin til afhendingar eða bjóða staðgengilsvörur ef að varan er uppseld.
- Eðlilegur afhendingatími vöru eru 5-7 virkir dagar frá því að pöntun hefur verið staðfest.
8. Póstsendingar Innanlands
- Allar vörur sem eru sendar fara með Íslandspósti
9. Póstsendingar til útlanda
- Ef verslað er erlendis frá greiðir kaupandi sendingarkostnaðinn, og allan þann aukakostnað sem kemur til vegna sendingar. Sent er með DHL
10. Yfirferð á vörum
- Eðlilegur athugunartími viðskiptavinar telst vera innan 30 daga.
- Eftir 30 daga áskilur seljandi sér rétt til að sannreyna staðhæfingu kaupanda innan eðlilegra tímamarka áður en leyst er úr umkvörtunarefni kaupanda.
11. Ábyrgðarskilmálar
- Komi upp galli í vöru er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað eða endurgreiðum sé þess krafist. Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á netfangið gullkunst@gullkunst.is með upplýsingum um galla vörunnar. Tilkynningarfrestur vegna galla er almennt tvö ár en fimm ár ef vöru er ætlaður verulega lengri endingatími sbr. 2. mgr. 27. gr. laga um neytendakaup.
-
Framvísa skal ábyrgðarskirteini eða kvittun sem fylgir vörunni þegar komið er með bilaða vöru til viðgerðar.
- Ábyrgðin tekur aðeins til verksmiðjugalla sem sannarlega koma fram í vörunni á ábyrgðartímanum. Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits á vöru eins t.d rispum eða öðrum óhöppum sem leiða til skemmda á vörunni. Að öðru leiti vísast til laga um neytendasamninga nr. 16/2016. https://www.althingi.is/lagas/nuna/2003048.html
- Um ábyrgð Gullkúnst á vörum fer samkvæmt ákvæðum laga nr. 48/2003, um neytendakaup, í tilviki neytendakaupa. Samkvæmt 7. gr. laganna telst söluhlutur afhentur þegar neytandi hefur veitt honum viðtöku og áhætta af hlutnum flyst yfir til neytanda þegar söluhlutur hefur verið afhentur, sbr. 1. mgr. 14. gr. laganna.
12. Persónuvernd
- www.gullkunst.is fer með persónuupplýsingar í samræmi við nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga
- Persónuupplýsingar eru geymdar í gagnagrunni www.gullkunst.is og hefur enginn nema eigendur vefsins og umsjónarmenn hans aðgang að þeim. Í engum tilvikum eru persónuupplýsingar afhendar þriðja aðila. Við kaup á vöru eða þjónustu veitir viðskiptavinur www.gullkunst.is samþykki sitt fyrir að fyrirtækið safni og vinni úr persónuupplýsingum úr gagnagrunni fyrirtækisins.
- www.gullkunst.is mun ekki undir neinum kringumstæðum geyma neinar kreditkorta upplýsingar kaupanda, þar sem kaupandi fer sjálfkrafa inná örugga greiðslusíðu Borgunar og gengur frá greiðslu fyrir kaupum þar.
- Aðgangur þinn og notkun á www.gullkunst.is er háð skilmálum og skilyrðum sem koma fram í þessari tikynningu um lagaleg atriði. Ef þú samþykkir ekki þessa skilmála, skaltu ekki nota þessa síðu. Þessir skilmálar geta breyst frá einum tíma til annars án fyrirvara.
13. Úrlausn vafamála
- Ávallt skal reyna að leysa öll mál á sem einfaldastan hátt.
- Vilji neytandi koma kvörtun á framfæri við seljanda skal hafa samaband á tölvupósti: gullkunst@gullkunst.is
- Neytendur geta skotið ágreiningsmálum vegna viðskipta við Gullkúnst til kærunefndar vöru og þjónustukaupa, Borgartúni 29, 105 Reykjavík. Vefslóð á vefsíðu nefndarinnar er eftirfarandi: www.kvth.is
- Sem síðasta úrræði er hægt að fara með málið fyrir dómstóla. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda .
14. Þjónusta og upplýsingar
- Ef þú hefur spurningar um innihald eða efni heimasíðunnar er þér velkomið að hafa samband við okkur gullkunst@gullkunst.is. Við munum svara öllum þínum fyrirspurnum með ánægju innan 2 virkra daga
